Skil á starfsskýrslum
07.03.2013
Sambandsaðilar ÍSÍ, íþrótta- og ungmennafélög og deildir þeirra eru minnt á að skilafrestur á starfsskýrslum til ÍSÍ rennur út eftir rúman mánuð, 15. apríl nk. ÍSÍ hvetur alla viðkmandi til að ljúka skilum sem fyrst í gegnum Felix, skráningarkerfi ÍSÍ og UMFÍ.
Bent er á leiðbeiningar um starfsskýrsluskil hér á heimasíðu ÍSÍ, undir flipanum Felix, eða með því að smella hér. Nánari upplýsingar og aðstoð veita Óskar Örn Guðbrandsson (oskar@felix.is) og Halla Kjartansdóttir (halla@isi.is) á skrifstofu ÍSÍ.