Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Nýr formaður Íþróttabandalags Suðurnesja

25.02.2013

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja fór fram í Golfskálanum í Grindavík 18. febrúar síðastliðinn.  Þingið var vel sótt og áttu öll virk félög í sambandinu þar fulltrúa. Gunnlaugur Hreinsson sem hefur verið formaður sambandsins með hléum í 20 ár, nú síðast samfellt í 8 ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. 

Nýr formaður til eins árs var kjörinn Gunnar Jóhannsson.  Á þinginu var samþykkt ný reglugerð um lottóskiptingu en einnig var samþykkt að endurskoða lög ÍS og leggja fram nauðsynlegar breytingar á næsta þingi sambandsins. 

Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Sigríður Jónsdóttir úr framkæmdastjórn ÍSÍ.  Ávarpaði hún þingið og flutti kveðjur forseta og framkvæmdastjórnar ÍSÍ.