Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Niðurstöður Ánægjuvogarinnar kynntar víða um land

28.01.2013

ÍSÍ og UMFÍ munu á næstunni kynna niðurstöður Ánægjuvogarinnar vítt og breytt um landið og mun Dr. Viðar Halldórsson sjá um kynninguna. Í fyrirlestrinum mun Viðar m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs og styðjast við niðurstöður rannsókna Rannsóknar og greiningar sl. 20 ár. Þá mun Viðar einnig gefa samfélögunum mynd af stöðu mála á hverjum stað fyrir sig, þegar kemur að íþróttaþátttöku, ánægju með íþróttaiðkun og neyslu vímuefna svo eitthvað sé nefnt.

Fyrirlestrarnir verða sem hér segir:

miðvikudaginn 30. janúar í sal Stéttarfélagsins Samstöðu, Blönduósi kl. 20:00
fimmtudaginn 31. janúar í Háskólanum á Akureyri í sal N 102 kl.17:00
mánudaginn 4. febrúar í Tíbrá, Selfossi kl. 17:00
þriðjudaginn 5. febrúar á Ísafirði (nánari uppl. síðar)
þriðjudaginn 12. febrúar í Borgarnesi (nánari uppl. síðar)

fimmtudaginn 14. febrúar í Hlymsdölum, Egilsstöðum kl. 17:15