Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir hefjast 17. janúar
14.01.2013
Reykjavík International Games eða Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir eru nú haldnir í sjötta sinn en þeir eru haldnir árlega í janúar. Á leikunum er keppt í átján íþróttagreinum og fer keppnin að mestu fram í Laugardalnum.
Greinar sem keppt er í að þessu sinni eru:
Badminton
Bogfimi
Borðtennis
Dans
Fimleikar
Frjálsar íþróttir
Júdó
Karate
Keila
Kraftlyftingar
Listhlaup á skautum
Ólympískar lyftingar
Skylmingar
Skvass
Sund
Sund fatlaðra
Tækvondo
Þríþraut
Allar nánari upplýsingar um mótið og viðburði því tengdu má finna á www.rig.is