Bjarni og Vala í Heiðurshöll ÍSÍ
08.01.2013Þann 29. desember síðastliðinn var útnefnt í Heiðurshöll ÍSÍ í annað sinn. Bjarni Ásgeir Friðriksson júdókappi og Vala Flosadóttir stangarstökkvari voru útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ en þar fyrir var Vilhjálmur Einarsson frjálsíþróttamaður sem útnefndur var fyrstur allra í Heiðurshöllina á 100 ára afmæli ÍSÍ 28. janúar sl.
Bjarna og Völu þarf vart að kynna en þau eru bæði verðlaunahafar í sinni íþrótt á Ólympíuleikum ásamt því að hafa unnið til fjölda verðlauna á mótum, bæði innanlands sem utan. Bæði áttu þau afar farsælan keppnisferil og eru miklar fyrirmyndir.
Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri af þeim Völu, Vilhjálmi og Bjarna. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar Völu og Bjarna innilega til hamingju með útnefninguna.