Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
13

Nýtt sérsamband innan vébanda ÍSÍ

21.12.2012

Stofnþing Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS) var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær.  Stjórn sambandsins skipa Lárus Blöndal, sem kjörinn var formaður sambandsins, Ari Jóhannsson, Tryggvi M. Þórðarson, Ragnar Róbertsson, Gunnar Hjálmarsson, Guðbergur Reynisson, Ólafur Guðmundsson og Björgvin Ólafsson.  Með stofnun Akstursíþróttasambands Íslands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 29 að tölu.  Akstursíþróttir eru í dag stundaðar innan vébanda 7 héraðssambanda/íþróttabandalaga en íþróttin hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár. 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar nýju sérsambandi velfarnaðar í starfi sínu í þágu akstursíþrótta.