Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
26

Ferðasjóður íþróttafélaga

20.11.2012

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga hefur verið opnað.  Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða á árinu 2012 rennur út á miðnætti mánudaginn 7. janúar 2013. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sent inn umsóknir í sjóðinn.  Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið með því að smella hér eða smella á tengilinn „Ferðasjóður íþróttafélaga” hér hægra megin á heimasíðunni undir listanum „Gagnlegt”. 

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send.  Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra.  Listi yfir styrkhæf mót er að finna á umsóknarsvæðinu og þar er einnig að finna svör við algengum spurningum.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.