Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26

Kynningar í framhaldsskólum

25.10.2012

Sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs heimsótti tvo framhaldsskóla á dögunum og var með kynningar og umfjöllun um ýmislegt sem snertir nám nemenda á íþróttasviði.  Hann fjallaði m.a. um skipulag ÍSÍ, þjálfaramenntun og barna- og unglingastefnu ÍSÍ auk þess að ræða um siðfræði tengda íþróttaþjálfurum.  Fyrri fyrirlesturinn var í Menntaskólanum á Tröllaskaga föstudaginn 19. október síðastliðinn og sá síðari í Kvennaskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 24. október. 

ÍSÍ hefur til langs tíma boðið upp á þessar kynningar og koma þá nemendur með kennara sínum í mörgum tilfellum í heimsókn til ÍSÍ í Laugardalinn eða þá að skólarnir eru heimsóttir eins og í þessum tilfellum.  Nokkrir framhaldsskólar hafa beðið um kynningar sem þessar árlega, hafa það sem fastan lið í námi nemenda á íþróttasviði.