Bjartur lífsstíll 60+
Bjartur lífsstíll leggur áherslu á markhópinn 60 ára og eldri (60+). Verkefnastjórar hafa stofnað stýrihópa í sérhverju sveitarfélagi á Íslandi og myndað tengsl við lykilstarfsfólk sem kemur að heilsueflingu fyrir 60+. Samvinna verkefnastjóra og lykilstarfsmanna felst í því að skima stöðu sveitarfélagsins, þ.e. hvað er í boði til að efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu eldra fólks. Verkefnastjórar veita þjálfurum aðstoð, ef með þarf, varðandi hreyfiúrræði. Lesa má nánar um verkefnið hér Unnið er að því að birta flest ef ekki öll hreyfiúrræði allra sveitarfélaga á einum stað, á skilvirkan og sjálfbæran máta, inn á Island.is
Verkefnastjórar heilsueflingar 60+ Margrét Regína Grétarsdóttir, íþróttafræðingur og starfsmaður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).
Heimasíðan er www.bjartlif.is Netfang - bjartlif@isi.is Sími - (+354) 514 4000 |
|
