Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Hlynur með Instagram ÍSÍ á þriðjudaginn
Hlynur Andrésson, frjálsíþróttamaður og margfaldur Íslandsmetshafi í hlaupagreinum, ætlar að taka yfir Instagram ÍSÍ á morgun þriðjudaginn 14. apríl.
Höldum áfram að hreyfa okkur
„Ísland á iði í 28 daga - 30 mínútur á dag“ er facebooksíða þar sem ÍSÍ setur inn fjölbreytta hreyfingu, fróðleik, myndir, myndbönd og almenna skemmtun sem mun nýtast öllum þeim sem áhuga hafa í þær vikur sem samkomubannið er við líði.
Fjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ
Fjarnám 1. 2. og 3. stigs verður í boði núna í apríl sem er óvenjulegt en gert í ljósi þess að nemendur hafi hugsanlega góðan tíma til að sinna náminu þessa dagana. Námið hefst mánudaginn 20. apríl. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Gleðilega páska
ÍSÍ óskar landsmönnum öllum gleðilegra páska.
Skrifstofa ÍSÍ er lokuð yfir páskana. Skrifstofan opnar aftur kl.10:00 þriðjudaginn 14. apríl.
Play true Day - Hreinar íþróttir
Dagurinn „Play True Day“ er haldinn 10. apríl ár hvert og er dagur tileinkaður hreinum íþróttum. Honum er ætlað að auka vitundarvakningu meðal íþróttafólks, íþróttasambanda, yfirvalda og annarra sem tengjast íþróttum um baráttuna gegn lyfjamisnotkun. Frumkvæðið og hugmyndina að þessum degi eiga 17 lönd í S-Ameríku eftir að hafa sótt fræðsluráðstefnu WADA (World Anti-Doping Agency) árið 2013. Síðan þá hafa á hverju ári fleiri og fleiri lönd og íþróttasambönd tekið þátt í deginum og deilt skilaboðunum um hinn sanna keppnisanda og um að vernda gildi íþróttanna. Oft er talað um þessi gildi sem „íþróttaandann“. Markmiðið með Play True Day er að gera daginn að alþjóðlegri herferð.
Við erum í baráttuhug
Ólympíuleikarnir munu fara fram í Tókýó frá 23. júlí til 8. ágúst 2021, ári eftir tilætlaðan tíma. Íslenskt frjálsíþróttafólk keppist nú um að endurskipuleggja áætlanir sínar og margir hverjir stefna á Ólympíuleikana 2021. Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) hefur átt keppendur á Ólympíuleikum frá 1912, þ.e. nánast frá upphafi þátttöku Íslands á Ólympíuleikunum, sem hófst árið 1908 með þátttöku í grísk-rómverskri glímu.
Ísland á iði í 28 daga - 30 mínútur á dag
Sveinbjörn með Instagram ÍSÍ í dag
Sveinbjörn Jun Iura, margfaldur Íslandsmeistari í júdó, tekur yfir Instagram ÍSÍ í dag.
Heilræði á tímum kórónuveiru
Lýðheilsusvið Embættis landlæknis hefur tekið saman 10 heilræði sem byggja á niðurstöðum rannsókna á því hvað er gagnlegt að gera til að hlúa að andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan. Nú þegar við stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum tengdum kórónuveirunni er mikilvægt að huga vel að þessum þáttum. Heilræðin taka mið af þeim sérstöku aðstæðum sem nú ríkja í samfélaginu. Heilræðin hafa einnig verið þýdd á ensku og pólsku.
Fjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ
Fjarnám 1. 2. og 3. stigs verður í boði núna í apríl sem er óvenjulegt en gert í ljósi þess að nemendur hafi hugsanlega góðan tíma til að sinna náminu þessa dagana. Námið hefst mánudaginn 20. apríl. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Frestun það eina rétta í stöðunni
Anton Sveinn Mckee, margverðlaunaður sundmaður og Íslandsmethafi, er eini Íslendingurinn sem náð hefur lágmarki á Ólympíuleikana í Tókýó. Hann keppti á Ólympíuleikunum í London 2012 og Ríó 2016. Hans sterkasta grein er bringusund og náði hann lágmarki í 200m bringusundi á heimsmeistaramótinu í Suður-Kóreu í júlí 2019.
Ólympíuleikar í Tókýó - Nýjar dagsetningar
Alþjóðaólympíunefndin (IOC), Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra (IPC), skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Tókýó 2020, japönsk yfirvöld og borgarstjórn Tókýó hafa tilkynnt nýjar dagsetningar fyrir Ólympíuleikana og Ólympíumót fatlaðra. Ólympíuleikarnir verða haldnir frá 23. júlí til 8. ágúst 2021. Leikarnir áttu að fara fram 24. júlí til 9. ágúst á þessu ári en var sem kunnugt er frestað vegna aðstæðna í heiminum í dag sökum Covid-19. Ólympíumót fatlaðra, Paralympics, fer fram frá 24. ágúst til 5. september 2021.