Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
74. Íþróttaþing ÍSÍ 2019
74. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið í Gullhömrum í Reykjavík 3.- 4. maí nk. Íþróttaþing ÍSÍ er æðsti vettvangur íslenskrar íþróttahreyfingar. Þingsetning verður föstudaginn 3. maí og hefst kl. 15:00.
Fyrir þinginu liggja 24 tillögur frá framkvæmdastjórn ÍSÍ og sambandsaðilum og má búast við starfasömu þingi. Öll þinggögn má finna hér á vefsíðu ÍSÍ og tillögur sem lagðar hafa verið fyrir þingið má sjá hér.
Alls eiga 108 fulltrúar sérsambanda og 108 fulltrúar íþróttahéraða fullan seturétt á þinginu, en auka þess eiga 18 íþróttahéruð rétt á einum áheyrnarfulltrúa til viðbótar, og er það breyting frá fyrri þingum. Þingfulltrúafjölda má sjá hér.
Kosningar til framkvæmdastjórnar ÍSÍ fara fram á laugardeginum 4. maí og gert er ráð fyrir að Íþróttaþinginu ljúki á laugardagseftirmiðdag.
Fyrirkomulag þingsins má sjá hér.GDPR fyrir íþróttahreyfinguna
Ný persónuverndarlöggjöf (GDPR) hefur tekið gildi á Íslandi. Með tilkomu hennar eru lagðar nýjar skyldur og kröfur á félagasamtök og fyrirtæki og er íþróttahreyfingin ekki þar undanskilin. Gerð er krafa um að öll sérsambönd, íþróttahéruð og aðildarfélög haldi skrá (vinnsluskrá) um alla vinnslu persónuupplýsinga innan viðkomandi einingar og einnig þarf að vinna áhættumat og úrbótaáætlun, ef nauðsyn er talin. Gerð er krafa um að allir ábyrgðaraðilar setji sér gilda Persónuverndarstefnu eða fræðslu til einstaklinga með öðru móti, sem unnið er eftir.
Lokað í dag á sumardaginn fyrsta
Lokað er á skrifstofu ÍSÍ í dag, sumardaginn fyrsta. Opið verður á morgun frá kl.8:30-16:00.
Nýr formaður hjá HHF
Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka fór fram á Hópinu í Tálknafirði 10. apríl sl. Margrét Brynjólfsdóttir var kjörin nýr formaður sambandsins og með henni í stjórn eru Sigurbjörn Veigar Friðgeirsson og Kristrún Guðjónsdóttir, ásamt tveimur varastjórnarmönnum.75. ársþing ÍA - Gullmerki ÍSÍ veitt
75. Ársþing ÍA var haldið í Hátíðarsal ÍA að Jaðarsbökkum þann 11. apríl sl. Þingforseti var kjörinn Hörður Ó. Helgason. Ársskýrsla framkvæmdastjórnar ÍA 2018 var lögð fram af formanni ÍA, Marellu Steinsdóttur, og má skoða hana hér.
44. Lyftingaþing LSÍ - Ný stjórn
Föstudaginn 12. apríl fór fram 44. Lyftingaþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ný stjórn LSÍ var kosin. Formaður er Ingi Gunnar Ólafsson og varaformaður er Erna Héðinsdóttir. Gjaldkeri er Ásgeir Bjarnason og ritari Davíð Ólafur Davíðsson. Meðstjórnandi er Magnús B. Þórðarson. Varastjórn skipa Margrét Benediktsdóttir, Sigurður Darri Rafnsson, Maríanna Ástmarsdóttir og Árni Rúnar Baldursson. Hjördís Ósk Óskarsdóttir mun hætta störfum sem framkvæmdarstjóri LSÍ en ekki hefur verið ráðinn starfsmaður í hennar stað. Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ, var þingforseti þingsins.
Skráning í Hjólað í vinnuna hefst í dag
Ársþing STÍ - Stjórn helst óbreytt
Ársþing Skotíþróttasambands Íslands (STÍ) var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þann 13. apríl sl. Fulltrúar tíu aðildarfélaga STÍ sóttu þingið. Stjórn sambandsins helst óbreytt. Formaður er áfram Halldór Axelsson. Aðrir í stjórn eru Jórunn Harðardóttir, Kjartan Friðriksson, Guðmundur Kr. Gíslason, Ómar Ö. Jónsson, Helga Jóhannsdóttir og Kristvin Ómar Jónsson. Reikningar sambandsins voru samþykktir einróma og var afkoma eftir áætlunum. Ein lagabreyting var samþykkt eftir töluverðar umræður og þurfa nú væntanlegir frambjóðendur að njóta stuðnings síns skotíþróttafélags til að geta boðið sig fram til stjórnarstarfa. Kosið var í fjölda nefnda. Hafsteinn Pálsson, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ, var fulltrúi ÍSÍ á þinginu. Jón S. Ólason var þingforseti og hafði hann góða stjórn á fundarmönnum.
Ársþing ÞRÍ - Ný stjórn
Ársþing Þríþrautarsamband Íslands (ÞRÍ) fór fram þann 15. apríl sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Hafsteinn Pálsson, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ, stjórnaði þinginu. Samfélagsmiðlar ÍSÍ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er með eftirfarandi samfélagsmiðlasíður. Endilega fylgið Facebook og Instagram síðum ÍSÍ. Einnig er myndasíða ÍSÍ reglulega uppfærð með nýjustu myndum og verið er að vinna í því að setja inn eldri myndir.Íþróttaþing ÍSÍ 2019 - Tíu aðilar gefa kost á sér til setu í framkvæmdastjórn ÍSÍ
Kjörnefnd Íþróttaþings hafa borist eftirtalin framboð til framkvæmdastjórnar ÍSÍ vegna 74. Íþróttaþings ÍSÍ 2019. Öll framboð eru löglega fram borin og uppfylla skilyrði 11. greinar laga ÍSÍ, 5. tölulið.
Íþróttaþing ÍSÍ 2019 - Þinggögn
74. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið í Gullhömrum í Reykjavík 3.- 4. maí nk. Íþróttaþing ÍSÍ er æðsti vettvangur íslenskrar íþróttahreyfingar. Þingsetning verður föstudaginn 3. maí og hefst kl. 15:00.