Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Hilmar í 13. sæti í svigkeppninni
Hilmar Snær Örvarsson keppti í svigi á Vetrar-Paralympics í PyeongChang sl. laugardag, 17. mars. Hilmar hafnaði í 13. sæti af þeim 23 keppendum sem náðu að ljúka keppni. Hilmar lauk því keppni í 20. sæti í stórsviginu og 13. sæti í svigkeppninni og ljóst er að hann er að bæta punktastöðu sína á heimslistanum umtalsvert.
Ásgeir sæmdur Gullmerki ÍSÍ
44. Ársþing Lyftingasambands Íslands var haldið þann 17. mars 2018 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Formaður setti þingið og bauð þingfulltrúa velkomna, en þingfulltrúar voru alls 12 frá sjö aðildarfélögum LSÍ. Ásgeir Bjarnaon, formaður LSÍ, flutti skýrslu stjórnar og svo reikninga þess í fjarveru gjaldkera. Fram kom að hann muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs sem formaður, en gefur kost á sér til stjórnarsetu. Fyrir þinginu lá ein lagabreytingartillaga svo og tvær tillögur um breytingar á móta- og keppnisreglum, sem starfað hefur verið eftir síðasta keppnistímabil eftir samþykki stjórnar. Allar tillögur voru samþykktar einróma.
Skrifstofa ÍSÍ lokuð í dag
Skrifstofa ÍSÍ verður lokuð vegna vinnufundar starfsfólks í dag föstudaginn 16. marsÁrsþing USVH 2018
USVH hélt ársþing sitt á Laugarbakka miðvikudaginn 14. mars síðastliðinn. Alls voru 30 þingfulltrúar mættir til þings af 34 mögulegum. Þingforseti var Júlíus Guðni Antonsson og stýrði hann þinginu af mikilli röggsemi eins og oft áður. Fjölmargar tillögur lágu fyrir þinginu og má þar nefna tillögu um nýja stefnu USVH í fjölmörgum málaflokkum. Stefnan er hluti af vinnu sambandsins í átt að því að fá viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarhérað. Tillaga um umsókn USVH til ÍSÍ þessa efnis var samþykkt samhljóða á þinginu. Reimar Marteinsson var endurkjörinn formaður sambandsins. Þórey Edda Elísdóttir stjórnarmaður í USVH og jafnframt úr framkvæmdastjórn ÍSÍ kynnti niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir íbúa sveitarfélagsins hvað varðar þörf á byggingu nýrra íþróttamannvirkja. Niðurstöður voru athyglisverðar og voru ræddar í þingsal. Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru þau Þórey Edda Elísdóttir og Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.
85. ársþing USÚ
85. ársþing USÚ var haldið í Hofgarði í Öræfum þann 12. mars sl. 24 ár eru liðin síðan ársþing USÚ var síðast haldið í Öræfum. Þingið var ágætlega sótt, 27 fulltrúar af 42 mættu frá flestum félögum.
Hilmar hafnaði í 20. sæti í stórsvigi
Hilmar Snær Örvarsson hefur lokið sinni fyrstu grein á Vetrar-Paralympics í Suður-Kóreu en hann varð á íslenskum tíma í nótt í 20. sæti í stórsvigi í standandi flokki. Hilmar bætti sig um tæpa sekúndu á milli ferða, var í 26. sæti eftir fyrri ferðina og klifraði upp í 20. sæti eftir þá síðari. Glæsileg frammistaða hjá þessum 17 ára skíðamanni frá Víkingi.
Skemmtilegar myndir á myndasíðu ÍSÍ
Norðlenskar verðlaunaafhendingar í Lífshlaupinu 2018
Norðlenskir þátttakendur stóðu sig með prýði í Lífshlaupinu 2018 enda öflugt afreksfólk við Eyjafjörðinn og í innsveitum. Því miður átti enginn þeirra heimangengt til að mæta á verðlaunaafhendingu Lífshlaupsins sem fram fór þann 23 febrúar sl. ÍSÍ býr hins vegar svo vel að eiga frábæra fulltrúa á Akureyri, en Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri og Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ tóku sig til og veittu verðlaunahöfum viðurkenningar nýlega.
Metoo og börnin - öryggi barna og ungmenna í tómstunda-, íþrótta- og æskulýðsstarfi
Náum áttum, samstarfshópur um fræðslu- og forvarnarmál, stendur fyrir morgunverðarfundi á morgun á Grand Hótel kl.08:15-10:00 sem ber heitið „Metoo og börnin - öryggi barna og ungmenna í tómstunda-, íþrótta- og æskulýðsstarfi“.
Keppni hefst hjá Hilmari Snæ á morgun
Á morgun 14. mars (laust eftir miðnætti í dag að íslenskum tíma kl. 00:25) hefst keppni hjá Hilmari Snæ Örvarssyni á Vetrar-Paralympics í PyeongChang í Kóreu. Vegna aðstæðna hefur mótsstjórn ákveðið að snúa við dagskránni í alpagreinum en upphaflega stóð til að Hilmar myndi keppa í svigi 14. mars en nú keppir hann í stórsvigi fyrst (14. mars) og síðan í svigi þann 17. mars.
10. ársþing HSÞ
Ársþing Héraðssambands Þingeyinga var haldið að Ýdölum sunnudaginn 11. mars síðastliðinn. Þingið var vel sótt en alls voru um 58 þingfulltrúar mættir af 71 og komu þeir frá 19 aðildarfélögum af 22. Alls 15 tillögur lágu fyrir þinginu og bættist sú 16. við í nefndarstörfum. Tillaga um breytingar á úthlutun lottótekna var felld á jöfnu en annars voru flestar tillögurnar samþykktar. Meðal samþykktra tillagna má nefna tillögu um nýja Íþrótta- og æskulýðsstefnu HSÞ sem þingið samþykkti að stjórnin í samvinnu við aðildarfélögin, önnur samtök, sveitarfélög, skóla, fyrirtæki o.fl. muni vinna á komandi misserum. Einnig var samþykkt tillaga um að HSÞ vinni að því að gerast fyrirmyndarhérað ÍSÍ. Formaður HSÞ, Anita Karin Guttesen gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í formannsstóli og var nýr formaður, Jónas Egilsson frá Ungmennafélagi Langnesinga kjörinn í hennar stað. Þinginu var stjórnað af röggsemi af þingforsetanum Ara Jósavinssyni.
Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2017
Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands ársins 2017.Til úthlutunar að þessu sinni voru 127 milljónir króna. Styrkirnir eru greiddir beint til félaga og deilda en hér fyrir neðan má sjá samantekt á skiptingunni tekið saman pr. íþróttahérað.