Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Setningarhátíð Lífshlaupsins fór fram í dag
Það var mikill kraftur og lífsgleði í íþróttasal Vættaskóla-Borgum í morgun þegar Lífshlaupið 2018 var ræst í ellefta sinn. Húsið var fullt út úr dyrum og mikil stemmning meðal viðstaddra. Lífshlaupið 2018 hefst á morgun
Lífshlaupið - landskeppni í hreyfingu hefst á morgun, miðvikudaginn 31. janúar 2018. Setningarhátíðin fer að þessu sinni fram í Vættaskóli-Borgum í Grafarvogi. Stutt ávörp verða flutt af Þuríði Óttarsdóttur skólastjóra og heiðursgestunum Lárusi L. Blöndal forseta ÍSÍ, Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.
Vorfjarnám í þjálfaramenntun
Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 12. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn innifalin.
Vel sótt ráðstefna um afreksþjálfun barna
Íþróttaleikar RIG formlega settir í gær
Íþróttaleikarnir WOW Reykjavik International Games voru formlega settir í Háskólanum í Reykjavík í gær. Leikarnir eru í umsjón Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), sem eru samtök íþróttafélaganna í Reykjavík. Það var borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, sem opnaði þessa miklu íþróttahátíð sem framundan er. Í dag eru þrjár keppnisgreinar á dagskránni: badminton, listskautar og sund.
Snemmbær afreksþjálfun barna í dag
Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir íþróttaráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík í dag fimmtudaginn 25. janúar. Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stofu V101 og hefst kl. 17. Ráðstefnustjóri verður Ingvar Sverrisson formaður ÍBR. Skráning fer fram hér á vefsíðu ÍSÍ og er aðgangur ókeypis.
PyeongChang 2018 - Vetrarólympíuleikar
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur staðfest val á keppendum og öðrum þátttakendum á Vetrarólympíuleikana í PyeongChang 2018 í Suður-Kóreu, en leikarnir fara fram dagana 9. til 25. febrúar nk.
Fræðandi myndbönd hjá Sýnum karakter
Mörg áhugaverð og fræðandi myndbönd má sjá á Youtube-síðu Sýnum karakter. Þar má meðal annars sjá upptökur af tveimur ráðstefnum sem haldnar voru í tengslum við verkefnið Sýnum karakter þar sem þjálfarar, afreksíþróttafólk og fleiri deila sinni reynslu úr íþróttaheiminum.
Íþróttahátíðin WOW Reykjavik International Games
Íþróttagreinarnar sem keppt er í á leikunum eru mjög fjölbreyttar og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Íþróttagreinarnar eru áhaldafimleikar, badminton, borðtennis, bogfimi, dans, frjálsíþróttir, hjólreiðar, júdó, karate, keila, kraftlyftingar, listhlaup á skautum, ólympískar lyftingar, skotfimi, skylmingar, skvass og sund.
ÍSÍ og Icelandair í samstarfi fram yfir Ólympíuleikana í Tókýó 2020
Í gær endurnýjuðu Icelandair og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands samning um áframhaldandi samstarf. Með þeim samningi staðfestir Icelandair þátttöku sína sem einn af fimm aðalstyrktaraðilum í Ólympíufjölskyldu ÍSÍ til ársins 2020.
Snemmbær afreksþjálfun barna 25. janúar
Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir íþróttaráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík fimmtudaginn 25. janúar. Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stofu V101 og hefst kl. 17.
Heiðranir á 90 ára afmæli KA
Sjö aðilar voru heiðraðir af ÍSÍ á 90 ára afmælishófi KA sem haldið var í KA heimilinu laugardaginn 13. janúar síðastliðinn. Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ afhenti fjórum aðilum Silfurmerki ÍSÍ, þeim Erlingi Kristjánssyni, Sigríði Jóhannsdóttur, Gunnari Garðarssyni og Gunnari Níelssyni. Ingi Þór afhenti svo þremur aðilum Gullmerki ÍSÍ, þeim Hrefnu Torfadóttur, Alfreð Gíslasyni og Ingibjörgu Ragnarsdóttur. Ingi Þór og Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri voru meðal um 500 afmælisgesta af þessu merka tilefni.