Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Handknattleiksdeild Fjölnis fyrirmyndardeild ÍSÍ
Handknattleiksdeild Fjölnis í Grafarvogi fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem fyrirmyndardeild ÍSÍ fimmtudaginn 14. desember síðastliðinn. Deildin fékk fyrst viðurkenningu sem fyrirmyndardeild árið 2013. Endurnýja þarf viðurkenninguna á fjögurra ára fresti og var þetta því fyrsta endurnýjun deildarinnar. Það var Úlfur Helgi Hróbjartsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem afhenti Arnóri Ásgeirssyni framkvæmdastjóra deildarinnar viðurkenninguna. Á myndinni eru frá vinstri Aðalsteinn Snorrason formaður deildarinnar, Arnór Ásgeirsson og Úlfur Hróbjartsson og tveir ungir iðkendur Fjölnis halda á fána fyrirmyndarfélaga.Fræðslufundur um forvarnir gegn kynferðislegri áreitni
Á dögunum fór fram fræðslufundur um birtingarmyndir og forvarnir gegn kynferðislegu áreiti og ofbeldi í íþróttum fyrir starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal.
Fræðsluefni tengt kynferðislegri áreitni og ofbeldi
Glímufélagið Ármann til fyrirmyndar
Glímufélagið Ármann fékk endurnýjun viðurkenninga fyrir allar sínar deildir sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ sunnudaginn 10. des. sl. á afmælishátíð félagsins í hátíðarsal Laugarbóls í Laugardal.Bækur um Vetrarólympíuleika
Golfklúbbur Selfoss fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Golfklúbbur Selfoss fékk endurnýjun viðurkenningar sinnar sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ á aðalfundi félagsins á Selfossi í gær. Það var Sigríður Jónsdóttir varaforseti ÍSÍ sem afhenti Ástfríði M. Sigurðardóttur formanni klúbbsins viðurkenninguna. Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá Sigríði og Ástfríði auk ungra iðkenda félagsins. Félagið lét útbúa forláta köku með merki fyrirmyndarfélaga af þessu tilefni og mæltist það ákaflega vel fyrir.Göngufótbolti hjá Þrótti
Fyrsta æfing í svokölluðum göngufótbolta var haldin föstudaginn 1. desember s.l. á Eimskipsvellinum í Laugardal. Göngufótbolti er fótbolti ætlaður eldri iðkendum og er markmiðið að hvetja eldri borgara og aðra til þess að stunda heilbrigða hreyfingu í góðum félagsskap. Íþróttin hefur notið töluverðra vinsælda í Englandi og á Norðurlöndunum.
Heimsókn frá Grænlandi
Þriðjudaginn 28. nóvember sl. heimsóttu þrír grænlenskir ráðherrar og ráðuneytisstjórar þeirra skrifstofu ÍSÍ, en um var að ræða hluta af heimsókn þeirra til Íslands til að kynna sér forvarnarstarfsemi á Íslandi. Hinn góði árangur Íslands á íþróttasviðinu var kveikjan að heimsókn þeirra til ÍSÍ en áður hafði hópurinn kynnt sér fjölmörg íslensk verkefni sem tengjast börnum, ungmennum, heimilum og skólastarfi. Aðkoma ÍSÍ að forvarnarstarfi er víðtæk en auk þess að vera virkur þátttakandi í fjölmörgum verkefnum í gegnum tíðina má segja að það eitt að börn og unglingar stundi íþróttir sé í raun ein virkasta forvörnin sem fyrir finnst.
Ísland með tvo fulltrúa í stjórn Evrópska fimleikasambandsins
Á ársþingi Evrópska fimleikasambandsins (UEG) um síðastliðna helgi voru þær Sólveig Jónsdóttir og Hlíf Þorgeirsdóttir kjörnar í stjórn sambandsins til næstu fjögurra ára. Þær hafa báðar starfað í nefndum UEG síðastliðin ár. Róbert heimsmeistari í 200m fjórsundi
Róbert Ísak Jónsson tryggði sér í nótt heimsmeistaratitilinn í 200m fjórsundi (S14, þroskahamlaðir) á HM sem nú stendur yfir í Mexíkó.
Dagur sjálfboðaliðans í dag
Haustfjarnámi í þjálfaramenntun lokið
Haustfjarnámi ÍSÍ í almennum hluta þjálfaramenntunarinnar er nú lokið. Samtals um 40 nemendur luku námi á 1. eða 2. stigi námsins og geta því sótt sérgreinaþátt námsins til viðkomandi sérsambanda ÍSÍ.