Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Irina Sazonova með þátttökurétt á Ólympíuleikana í Ríó
Fimleikakonan Irina Sazonova úr Ármanni tryggði sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Ríó á úrtökumóti sem fram fór í sömu borg um helgina. Irina sem varð í 39. sæti á úrtökumótinu með 52.931 stig er þar með fyrsta íslenska konan sem öðlast hefur keppnisrétt á Ólympíuleikum í fimleikum.Júdódeild UMF Selfoss fyrirmyndardeild ÍSÍ
GKG fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ laugardaginn 9. apríl síðastliðinn. Þann dag fékk félagið einnig afhenta nýja og glæsilega félagsaðstöðu við Vífilsstaði í Garðabæ.Guðjón Ingi sæmdur Gullmerki ÍSÍ
Ársþing Skylmingasambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 13. apríl síðastliðinn. Formaður sambandsins, Guðjón Ingi Gestsson,setti þingið og bauð þingfulltrúa velkomna en alls sóttu þingið 16 fulltrúar frá þremur aðildarfélögum. Hann flutti síðan skýrslu stjórnar og minnti á að tíu ár eru liðin frá stofnun sambandsins. Framkvæmdastjóri sambandsins, Nikolay Ivanov Mateev flutti endurskoðaða reikninga sambandsins en rekstrarniðurstaða sambandsins hefur verið jákvæð undanfarin ár.Nýjung í þingstörfum á þingi UÍA
Ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands var haldið í Miklagarði á Vopnafirði 9. apríl síðastliðinn. Karlakór Vopnafjarðar söng við setningu þingsins sem 43 þingfulltrúar frá félögum af UÍA svæðinu sóttu. Þingið einkenndist af virkri þátttöku þingfulltrúa og líflegum umræðum en í stað hefðbundins nefndafyrirkomulags þá var umræðuvettvangur (World Café) nýttur til að skapa hugarflæði og gefa þingfulltrúum frekari kost á að koma hugmyndum sínum á framfæri. Gott ársþing USVH
Kaffisamsæti SÍÓ 14. apríl
Skotfélagið Markviss fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Skotfélagið Markviss fékk viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ fimmtudaginn 7. apríl síðastliðinn á sýningar- og kynningardegi félagsins í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.Starfsskýrslum þarf að skila fyrir 15. apríl
Haukur endurkjörinn formaður TKÍ
Ársþing Taekwondosambands Íslands (TKÍ) fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 17. mars síðastliðinn. Haukur Skúlason var endurkjörinn til tveggja ára og Eduardo Rodriguez og Jón Oddur Guðmundsson voru kjörnir stjórnarmenn til tveggja ára. Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson var kjörinn stjórnarmaður til eins árs og Andri Geir Nielsson heldur áfram sem meðstjórnandi sitt síðara ár.