Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Afrekssjóður ÍSÍ - sér vefsvæði
Norrænn fundur um þjálfaramenntun
Norrænn fundur um þjálfaramenntun og þróun hennar var haldinn í Helsinki dagana 31. október og 1. nóvember sl. Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri er fulltrúi ÍSÍ í norrænni nefnd um þetta mikilvæga málefni ásamt fulltrúum Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands og hefur nefndin komið saman árlega í mörg ár. Auk meðlima nefndarinnar sátu hluta fundarins 25 aðrir aðilar sem komu ýmist frá finnsku Ólympíunefndinni eða hinum ýmsu sérsamböndum. Fundurinn var góður í alla staði og margt athyglisvert til umræðu og skoðunar hvað varðar þróun og ágæti menntunar íþróttaþjálfara. Gæði í íþróttaþjálfun, rannsóknir, gildi, þróun, menntakerfi og námsleiðir ásamt deilingu þekkingar og reynslu var meðal þess sem rætt var á fundinum. Næsti fundur verður haldinn í Svíþjóð á næsta ári.
Nýr framkvæmdastjóri hjá HSH
Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH) hefur ráðið Laufeyju Helgu Árnadóttur í 50% stöðu sem framkvæmdastjóra sambandsins. Laufey Helga er frá Ólafsvík, menntuð sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með meistaragráðu í kennsluréttindum frá Háskólanum á Akureyri.100 dagar til PyeongChang 2018
Í dag, 2. nóvember, eru 100 dagar í að Vetrarólympíuleikarnir í PyeongChang verða settir. Góð heimsókn frá Íþróttasambandi Grænlands
Stjórn og framkvæmdastjóri Íþróttasambands Grænlands heimsóttu höfuðstöðvar ÍSÍ á dögunum. Hópurinn var staddur á Íslandi í vinnuferð stjórnar og heimsóttu þau meðal annars í ferðinni Umf. Selfoss þar sem þau fengu kynningu á skipulagi og starfi félagsins og samstarfi þess við viðkomandi sveitarfélag. Rafræn könnun um réttindi íþróttafólks í lyfjamálum
Alþjóðalyfjaeftirlitið eða World Anti Doping Agency (WADA) í samvinnu við landslyfjaeftirlit víðs vegar í heiminum (NADOs) og íþróttamannanefnd WADA, hóf fyrr á þessu ári drög að sáttmála um réttindi íþróttafólks. Markmiðið með slíkum sáttmála er að tryggja og auka réttindi íþróttafólks, því lyfjaeftirlit snýst fyrst og fremst um það; réttindi heiðarlegs íþróttafólks. Hugmyndin er að innleiða efni sáttmálans inn í Alþjóðalyfjareglurnar (WADA Code).
Heimsókn frá nemendum úr FV
Sameinuð samtök - farsælt starf í 20 ár
Í dag, 1. nóvember 2017, eru 20 ár síðan stofnþing Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), sameinaðra samtaka Íþróttasambands Íslands og Ólympíunefndar Íslands (ÓÍ), fór fram á Grand Hótel Reykjavík.
Fyrir sameininguna sá Ólympíunefnd Íslands um undirbúning og þátttöku Íslands í Ólympíuleikum en Íþróttasamband Íslands sameinaði íþróttahreyfinguna á Íslandi undir einu merki, vann að því að breiða út íþróttaáhuga, efla innra starf og var samnefnari í baráttu fyrir hagsmunamálum hreyfingarinnar.Sportmarkaður ÍSÍ fer fram á morgun
Sportmarkaður ÍSÍ fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, í C-sal á 3. hæð frá kl. 12-18 á morgun miðvikudaginn 1. nóvember. Íþróttamiðstöðin er við Engjaveg 6, 104 Reykjavík.
Fimleikasamband Íslands hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ
Fimleikasamband Íslands (FSÍ) hefur hlotið viðbótarstyrkveitingu úr Afrekssjóði ÍSÍ vegna landsliðsverkefna ársins 2017. Um er að ræða styrk að upphæð 8 m.kr. sem bætist við fyrri úthlutun til sambandsins, en sambandið hlaut styrk að upphæð 7.950.000 kr. í fyrri úthlutun ársins úr Afrekssjóði ÍSÍ.