Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Formannafundur ÍSÍ
ÍSÍ-fréttir
Fjármálaráðstefna ÍSÍ vel sótt
Fjármálaráðstefna ÍSÍ var haldin föstudaginn 29. nóvember sl. í Laugardalshöll og var vel sótt. Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ fór yfir lykiltölur úr rekstri íþróttahreyfingarinnar en tölurnar eru unnar upp úr Felix, skráningarkerfi ÍSÍ og UMFÍ. Fulltrúar fimm íþróttafélaga á landsvísu héldu erindi um ýmsa þætti í rekstri síns félags og ytra umhverfi þeirra. Fjármálaráðstefna ÍSÍ og Formannafundur ÍSÍ
Kraftlyftingadeild Breiðabliks Fyrirmyndardeild ÍSÍ
Kraftlyftingadeild Breiðabliks fékk viðurkenningu sem fyrirmyndardeild ÍSÍ laugardaginn 23. nóvember síðastliðinn á Bikarmóti KRAFT sem haldið var í Smáranum. Kraftlyftingadeildin er þriðja deildin/félagið sem fær viðurkenningu fyrirmyndarfélaga frá ÍSÍ innan þessarar íþróttagreinar. Það var Sigríður Jónsdóttir sem afhenti viðurkenninguna í hléi á mótinu. Á myndinni eru frá vinstri, Auðunn Jónsson varaformaður kraftlyftingadeildarinnar, Róbert Kjaran ritari deildarinnar, Ragnheiður Halldórsdóttir úr aðalstjórn Breiðabliks og jafnframt verkefnisstjóri verkefnisins Breiðablik sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, Kristján Jónatansson framkvæmdastjóri Breiðabliks, Orri Hlöðversson formaður Breiðabliks og Sigríður Jónsdóttir formaður Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ. Samstarfssamningur Beiersdorf og Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ
Sjóva Kvennahlaup ÍSÍ verður 25 ára á næsta ári og mun hlaupið fara fram laugardaginn 14. júní 2014. Undirbúningur fyrir hlaupið er kominn á fullt og í dag var undirritaður samstarfssamningur við Beiersdorf vegna aðkomu þeirra að Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ.
Samstarfssamningurinn felur í sér að merki NIVEA verður á annarri ermi Kvennahlaupsbolsins sem og á völdu kynningarefni í tengslum við Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ. Beiersdorf mun gefa þátttakendum í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ 2014 glaðning að hlaupi loknu og mun einnig gefa öllum framkvæmdaaðilum Kvennahlaupsins á Íslandi veglegar jólagjafir.
Beiersdorf hefur verið samstarfsaðili Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ frá árinu 2011 og er Kvennahlaupsnefnd ÍSÍ afar ánægð með áframhaldandi samstarf.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Ólaf Gylfason sem skrifaði undir fyrir hönd Beiersdorf og Kristínu Lilju Friðrksdóttur sem skrifaði undir fyrir hönd ÍSÍ. Málþing ÍBA
Íþróttabandalag Akureyrar stóð fyrir málþingi um íþróttaiðkun barna og forvarnir föstudaginn 22. nóvember s.l.Nýr bæklingur um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi í íþróttum
Haukur Örn Birgisson kjörinn nýr forseti GSÍ
Ársþing Golfsambands Íslands var haldið laugardaginn 23. nóvember sl. í Laugardalshöll. Jón Ásgeir Eyjólfsson gaf ekki kost á sér áfram í embætti forseta og var nýr forseti kjörinn Haukur Örn Birgisson.Lárus Páll endurkjörinn formaður LSÍ
Ársþing Lyftingasambands Íslands var haldið laugardaginn 23. nóvember sl. Um var að ræða afmælisþing sambandsins, sem fagnaði 40 ára afmæli á árinu. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra var gestur þingsins og ávarpaði þingfulltrúa og gesti við þingsetningu. Fjármálaráðstefna ÍSÍ 2013
Fjármálaráðstefna ÍSÍ verður haldin í Laugardalshöll föstudaginn 29. nóvember næstkomandi kl. 13:00-16:00. Ráðstefnan mun að þessu sinni fjalla um rekstrarumhverfi íþróttafélaga og íþróttahreyfingarinnar í heild sinni.Aðalfundur GSSE
Aðalfundur GSSE - Games of the Small States of Europe (Smáþjóðaleikar) var haldinn í Róm 22. nóvember sl. þar sem Lárus L. Blöndal tók formlega við sem forseti samtakanna. Á fundinum voru samþykktar breytingar á lögum samtakanna, sem meðal annars fela í sér að aðalfundur verður nú haldinn árlega en ekki annað hvert ár eins og verið hefur til þessa.