Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
27

Erna Héðinsdóttir lyftingadómari á Ólympíuleikunum

11.08.2024

 

Erna Héðinsdóttir hefur verið í París síðustu daga að dæma lyftingar á Ólympíuleikunum en hún er alþjóðlegur lyftingadómari. 
Erna kom til Parísar á sunnudaginn, 4. ágúst, þar sem keppt var í lyftingum seinni hluta Ólympíuleikanna en keppninni lýkur í dag, sunnudag.

Erna segir það mikla upplifun að dæma á Ólympíuleikum og frábæra reynslu sem hún tekur með sér heim en hún er einn fremsti dómari Íslands eins og sakir stendur. Hún hefur dæmt á fjölmörgum mótum víðs vegar um heiminn en Ólympíuleikarnir toppa allt. 
Keppnin í ár hefur verið skemmtileg og spennandi og áhorfendur hafa sett skemmtilega stemningu í keppnina, sem hún hefur ekki upplifað áður. 

Erna er að taka þátt í sínum fyrstu Ólympíuleikum og segist hafa átt virkilega góða og skemmtilega daga í París.

Myndir/einkasafn.

 

Myndir með frétt