Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
26

Anton Sveinn á Ólympíuleikana í París 2024

28.07.2023

 

Anton Sveinn McKee tryggði sér í gær þátttökurétt á Ólympíuleikunum í París næsta sumar þegar hann synti 200m bringusund á tímanum 2:09,19 á Heimsmeistarmótinu í Fukuoka í Japan.

Anton Sveinn er fyrsti Íslendingurinn til þess að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum en vonir standa til að fleiri íslenskir íþróttamenn fylgi í kjölfarið og tryggi sér þátttökurétt á leikunum. Tæpt ár er í leikana.  Framundan verða því krefjandi en skemmtilegir mánuðir hjá fjölmörgum íþróttamönnum sem enn eiga möguleika á því að vinna sér inn þátttökurétt.

Ólympíuleikarnir í París næsta sumar verða fjórðu Ólympíuleikar Antons.

ÍSÍ óskar Antoni Sveini innilega til hamingju og góðs gengis í undirbúningi sínum fyrir leikana.