Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23

Á leið til Ólympíu

08.06.2023

 

Þau Erla Marý Sigurpálsdóttir og Gestur Gunnarsson voru valin úr hópi umsækjenda til að sækja námskeið Alþjóða Ólympíuakademíunnar sem fram fer í Ólympíu í Grikklandi dagana 10.-22. júní. Námskeiðið er haldið árlega og stendur tveimur einstaklingum á aldrinum 20-30 ára til boða að taka þátt og er ferðin þeim að kostnaðarlausu.

Erla Marý og Gestur kíktu í heimsókn í höfuðstöðvar ÍSÍ, fengu fatnað og voru nestuð með ýmsum upplýsingum og eru nú tilbúin til fararinnar. Það verður spennandi að fylgjast með þeirra ferðalagi á Instagram og Instastory ÍSÍ (isiiceland) en þar ætla þau að gefa öðrum innsýn inn í ferðina og verkefnið.

Þátttakendur taka þátt í alþjóðlegu námskeiðahaldi í tæpar tvær vikur og búa á heimavist Alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu. Unnið er í lotum fyrir hádegi og eftir hádegi sem gjarnan lýkur á umræðum. Að því loknu er ýmislegt gert til að hrista hópinn saman; keppt í allskonar íþróttum, farið á ströndina og í skoðunarferðir. Reynsla þeirra sem hafa farið er að þau hafa öðlast dýpri skilning á sögu Ólympíuleikanna, fyrir hvað Ólympíuhugsjónin stendur og hvernig megi miðla þeirri þekkingu áfram. Það dýrmætasta hafa þó verið vináttuböndin sem þátttakendur mynda að lokinni tveggja vikna dvöl.

Myndir með frétt