Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23

Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

30.09.2022

 

Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst mánudaginn 3. október næstkomandi.  Boðið verður upp á nám á 1. 2. og 3. stigi menntunarinnar.  Námið gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar og þjálfarar sækja svo sérgreinaþátt námsins hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ eða með sambærilegum hætti.  Skráningarfrestur er til mánudagsins 3. okóber og fer skráningin fram á Sportabler:

https://www.sportabler.com/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka.  Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“

Allar frekari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 og/eða 863-1399 og einnig á vidar@isi.is 

Dæmi um svör nemenda í fjarnáminu þegar þeir voru spurðir út í helstu kosti námsins:

„Lærdómsríkt, skemmtilegt og nytsamlegt“.

„Gott aðgengi að kennara og vel útskýrt námsefni“.

„Hellings fróðleikur um þjálffræði“.

„Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn“.

„Farið vel yfir langflesta þætti sem snúa að þjálfun“.

 „Alhliða nám og hefur ólíkar nálganir“.

„Góðir kennarar og vel valið efni“.