Í nógu að snúast fyrir EYOF í Slóvakíu
29.06.2022
Undirbúningur fyrir Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar - EYOF, sem fer fram í Banská Bystrica í Slóvakíu dagana 24. – 30. júlí er á fullum snúningi.
Í vikunni fór fram fatamátun í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fyrir íslensku þátttakendurna sem keppa munu á þessu stærsta fjölíþróttamóti ungmenna í Evrópu. Íslenski hópurinn mun klæðast íþróttafatnaði frá PEAK og JAKO.
Um 3.600 ungmenni munu taka þátt í mótinu en Ísland sendir að þessu sinni tæplega 40 keppendur til keppni í átta íþróttagreinum.