Nýr framkvæmdastjóri UMSB
25.05.2022
Bjarney Bjarnadóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdarstjóra Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) og kemur hún til starfa í júní.
Bjarney er með BSc í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík, auk kennsluréttinda fyrir grunn- og framhaldsskóla. Þá leggur Bjarney stund á meistaranám í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun.
Bjarney lék handbolta og þjálfaði í fjölda ára. Hún hefur bæði kennt íþróttir og lífsleikni og komið að heilsueflingu fatlaðra. Síðustu ár hefur Bjarney starfað sem umsjónarkennari við Grunnskólann í Borgarnesi.
Sigurður Guðmundsson, fráfarandi framkvæmdastjóri vinnur út júnímánuð.
ÍSÍ býður Bjarneyju velkomna til starfa í íþróttahreyfingunni og þakkar Sigurði fyrir gott samstarf á liðnum árum.
Mynd/UMSB.