Hjólað í vinnuna fer vel af stað
12.05.2022
Hjólað í vinnuna er í fullum gangi þessa dagana en það er enn hægt að bæta við liðsmönnum svo það er um að gera að bætast í hópinn. Hægt er að nota Strava appið til að halda utan um sínar ferðir og vegalengdir og hlaða upplýsingunum beint inn í skráningarkerfið.
Á meðan á verkefninu stendur þá er skemmtilegur skráningar- og myndaleikur í gangi. Þátttakendur geta bæði sent inn myndir í gegnum heimasíðuna www.hjoladivinnuna.is eða notað myllumerkið #hjoladivinnuna og/eða @hjoladivinnuna á samfélagsmiðlum. Næsti útdráttur verður 18. maí nk. Besta myndin verður svo valin í lok verkefnisins.
Heimasíða verkefnisins er www.hjoladivinnuna.is en þar er að finna ýmsan fróðleik um verkefnið, skráningu og um hjólreiðar.