Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

16.05.2024 - 16.05.2024

Ársþing FSÍ 2024

Ársþing Fimleikasambands Íslands (FSÍ) verður...
17

Upplýsingar um skráningu í haustfjarnámið!

14.09.2021

Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst mánudaginn 27. september.  Auglýsing um námið var send út og birt hér fyrir skömmu en upplýsingar um skráningar í námið vantaði.   

Skráningin fer fram í Sportabler:   www.sportabler.is/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið t.d. "Námskeiðsgjald á 1. stig" og til verður krafa í heimabanka. Námskeiðsgögn verða send og opnað verður fyrir námið þegar greiðslan hefur verið innt af hendi. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir "Nýr notandi".

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 og/eða á vidar@isi.is .