Reglugerðir um takmarkanir á samkomum framlengdar um viku
04.05.2021
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglugerða um takmarkanir á samkomum og skólastarfi um eina viku og því er ljóst að reglur í íþrótthreyfingunni haldast óbreyttar þar til í næstu viku.
Við minnum á að reglur sérsambanda er hægt að nálgast hér á heimasíðu ÍSÍ en reglurnar í íþróttahreyfingunni eru í aðalatriðum eftirfarandi:
- Íþróttaæfingar og – keppnir barna og fullorðinna eru heimilar með og án snertingar og hámarksfjöldi þátttakenda miðast við 50 manns í rými.
- Heimilt er að hafa allt að 100 áhorfendur á íþróttaviðburðum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem lúta að skráningu, sætum, nándarmörkum og grímuskyldu. Einungis er heimilt að hafa tvö sótthólf fyrir að hámarki 100 áhorfendur í hvoru hólfi.
Sjá nánari upplýsingar í frétt á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins: