Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Tilmæli sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra varðandi íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu

09.10.2020

 

Sóttvarnarlæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa sent tilmæli til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu eru þar beðin um að gera hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum frá deginum í dag til 19. október. Jafnframt eru þau beðin um að fresta keppnisferðum út á land. 
Í fréttatilkynningu sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra er komið inn á fleiri atriði sem tilmæli eru um hér á höfuðborgarsvæðinu. 

Tilmælin eru eftirfarandi:
Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ítreka tilmæli sín vegna aukins fjöldi smita einkum á höfuðborgarsvæðinu, vegna Covid-19 síðustu daga og aukið hafa líkur á veldisvexti í faraldrinum. 
Búast má við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga. Tilmælin eru;  

Hvetjum alla á höfuðborgarsvæðinu til að vera eins mikið heimavið og kostur er. 
Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til. 
Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er. 
Takmörkun fjölda í búðum –einn fari að versla frá heimili ef kostur er.
Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim 
Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni. 
Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk 
Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.
Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir. 
Allir á höfuðborgarsvæðinu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sérstaklega vel að sér næstu vikur

Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti á fundi sínum rétt í þessu að beina því til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu að fara að tilmælum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ beinir því einnig til íþróttahreyfingarinnar í heild að taka tillit til þeirra aðstæðna sem skapast hafa á höfuðborgarsvæðinu og þeirra aðgerða sem sérsambönd ÍSÍ hafa þurft að grípa til í kjölfarið.


Jafnframt er bent á að tilmæli um ferðalög til eða frá höfuðborgarsvæðinu ná einnig til iðkenda og annarra þátttakenda í íþróttastarfinu.

Á vef stjórnarráðs Íslands hefur verið birt frétt um COVID-19: Um reglur og tilmæli
Til viðbótar við reglugerð heilbrigðisráðuneytisins sem birt var í fyrradag er í fréttinni vísað til tilmæla sóttvarnarlæknis og þeirra sjónarmiða hans að stöðva beri allt skipulagt íþróttastarf hjá börnum næstu tvær vikurnar á höfuðborgarsvæðinu. 
Tilmæli sóttarnarlæknis fela í sér beiðni til fólks um að sýna samstöðu og þá e.t.v. ganga lengra en þarf samkvæmt laganna bókstaf.