Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Þegar orkuna skortir – áhrif á heilsu og íþróttaárangur

15.09.2020

Þann 23. september nk. fer fram hádegisfundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, E-sal, sem ber heitið Þegar orkuna skortir – áhrif á heilsu og íþróttaárangur. Fundurinn er frá kl. 12:10-13:00.

Á hádegisfundinum mun Birna Varðardóttir, doktorsnemi í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands, fjalla um stöðu þekkingar varðandi hlutfallslegan orkuskort í íþróttum (e. Relative Energy Deficiency in Sport, RED-s). RED-s stafar af viðvarandi skorti á tiltækri orku (e. energy availability) og getur haft víðtæk áhrif á heilsu og árangur íþróttafólks óháð kyni, aldri og getustigi. Birna er að hefja sitt doktorsnám þar sem markmiðið er að skoða algengi og áhættuþætti RED-s meðal íslensks íþróttafólks. Nýlega birtist samantektargrein um RED-s frá Birnu og leiðbeinendum hennar hér í Læknablaðinu.

Á fundinum er ætlunin að kynna hlutfallslegan orkuskort og markmið fyrirhugaðs rannsóknarverkefnis fyrir íslenskri íþróttahreyfingu. Niðurstöður þess verkefnis gætu lagt grunninn að íslenskum skimunartækjum og ráðleggingum, auk þess að efla forvarnir og meðferð.

Eins og fram kemur hér að ofan þá fer fundurinn fram í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar og að sjálfsögðu verður öllum sóttvarnarreglum fylgt. Einnig verður boðið upp á að fylgjast með kynningunni í gegnum Teams og er hlekkur á Teams hér. Aðgangur er ókeypis.