Smáþjóðaleikunum 2019 slitið
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/2019-GSSE/IMG_2799.jpg?proc=400x400)
Keppni á Smáþjóðaleikunum 2019 í Svartfjallalandi lauk í dag. Lokahátíðin fór fram í leikaþorpinu í kvöld og Anton Sveinn Mckee, sundmaður, var fánaberi fyrir hönd Íslands. Hátíðin hófst á því að íþróttafólk í blaki og körfuknattleik fékk sín verðlaun afhend. Íslenska íþróttafólkið var glæsilegt á sviðinu í verðlaunaafhendingunni. Forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og forseti Evrópusambands Ólympíunefnda voru viðstaddir lokaathöfnina ásamt háttsettum gestum frá Svartfjallalandi. Leikunum var slitið með kraftmikilli flugeldasýningu.
Íslenskir þátttakendur fara heim í kvöld.
Næstu leikar fara fram í Andorra 2021 og tók forseti Ólympíunefndarinnar í Andorra formlega við fána Smáþjóðaleikanna á lokahátíðinni.