Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Karatedeild Ungmennafélagsins Aftureldingar Fyrirmyndardeild ÍSÍ

14.03.2019

Karatedeild Ungmennafélagsins Aftureldingar fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ á aðalfundi deildarinnar í Mosfellsbæ 11. mars sl. Það var Þráinn Hafsteinsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti deildinni viðurkenninguna. Aðalstjórn félagsins stefnir að því að gera allar deildir að Fyrirmyndardeildum og þar með félagið í heild sinni að Fyrirmyndarfélagi ÍSÍ.

Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ eru gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snúa að íþróttastarfi. Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta íþróttafélög, -deildir eða -héruð sótt um viðurkenningu til ÍSÍ miðað við þær gæðakröfur sem ÍSÍ gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, Fyrirmyndardeild ÍSÍ eða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. ÍSÍ hvetur íþróttafélög, -deildir og -héruð til að sækja um þessa viðurkenningu til ÍSÍ.

Umsjón með verkefninu hefur Viðar Sigurjónsson (vidar@isi.is), skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.

Lesa má meira um Fyrirmyndarfélag ÍSÍ hér.

Lesa má meira um Fyrirmyndarhérað ÍSÍ hér.