Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Íþróttavika Evrópu - Setning 23. september

12.09.2018

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands mun hefja Íþróttaviku Evrópu formlega í Laugardalnum sunnudaginn 23. september nk. með ýmsum uppákomum. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Vefsíða verkefnisins er www.beactive.is og þar má nálgast nánari upplýsingar um setningu verkefnisins og fleiri viðburði vikuna 23. - 30. september. Verkefnið er líka að finna á Facebook hér.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hlaut styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu.