Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Ársþing HSV - Guðný sæmd Gullmerki ÍSÍ

14.05.2018

Ársþing HSV 2018 var haldið í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 9. maí sl. Guðný Stefanía Stefánsdóttir sem verið hefur formaður HSV síðustu fjögur ár gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Eitt framboð barst til formanns og var Ásgerður Þorleifsdóttir kjörinn nýr formaður HSV með lófaklappi. Úr stjórn gekk einnig Páll Janus Þórðarson og í hans stað var kjörinn Baldur Ingi Jónasson. Stjórn HSV er nú þannig skipuð:
Ásgerður Þorleifsdóttir formaður, Hildur Elísabet Pétursdóttir, Karl Ásgeirsson, Ingi Björn Guðnason og Baldur Ingi Jónasson.
Í varastjórn voru endurkjörin Heimir Hansson og Elísa Stefánsdóttir. Elín Marta Eiríksdóttir gaf ekki kost á sér til endurkjörs og í hennar stað var kosin Karlotta Dúfa Markan.
Á þinginu var samþykkt lagabreytingatillaga frá stjórn sambandsins þar sem lagt var til að bæta inn í lög sambandsins ákvæði um að geri félag ekki skil á ársskýrslum á réttum tíma tvö ár í röð megi vísa því úr sambandinu. Einnig voru samþykktar almennar tillögur sem bárust þingi. Meðal annars samþykkti þingið að HSV myndi sækja um að halda unglingalandsmót UMFÍ árið 2021 í Ísafjarðarbæ og samþykkt var tillaga frá Vestra um að hvetja stjórnir allra héraðssambanda á Vestfjörðum að kanna kosti og galla sameiningar, allra eða hluta af héraðssamböndunum. Einnig samþykkti þingið að hvetja öll íþróttafélög sambandsins til að taka föstum tökum mál er varða ofbeldisbrot, einelti, kynferðislegt og kynbundið áreiti með það að leiðarljósi að tryggja öryggi, jafnrétti og jafnræði þeirra sem iðka og starfa innan félaganna. Koma upp viðbragsáætlunum við hvers kyns ofbeldi og útbúa verkferla til úrlausnar í samvinnu við yfirstjórn íþróttahreyfingarinnar. 
Nokkur umræða var um inneignir sem skapast hafa þegar félögum er ekki greiddur út lottóstyrkur vegna vanhalda á skýrsluskilum. Lögin kveða á um að sú fjárhæð eigi að leggjast inn á Afrekssjóð HSV en það hefur ekki verið gert. Var að lokum samþykkt tillaga sem veitti stjórn HSV óskorað umboð til að ganga frá þeim greiðslum til afrekssjóðs afturvirkt.

Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ. Hann ávarpaði þingið og afhenti Guðnýju Stefaníu Stefánsdóttur, fráfarandi formanni HSV, Gullmerki ÍSÍ en framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti samhljóða að sæma Guðnýju Stefaníu heiðursviðurkenningunni fyrir hennar góðu störf í þágu íþrótta á starfssvæði HSV.
Veitt voru 10 starfsmerki HSV á þinginu. Silfurmerki HSV hlutu átta einstaklingar; Jóhanna Oddsdóttir Skíðafélagi Ísfirðinga, Jakob Ólafur Tryggvason Skíðafélagi Ísfirðinga, Kristján Kristjánsson Vestri, Guðfinna Hreiðarsdóttir Vestra, Birna Lárusdóttir Vestra, Heiðrún Tryggvadóttir, Guðrún Sæbjörg Höfrungi og Gunnar Bjarni Guðmundsson HSV. Gullmerki HSV hlutu Óskar Kárason og Sigmundur Fríðar Þórðarson. 

Myndir með frétt