Ráðstefna um lyfjamál íþróttahreyfingarinnar
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur standa fyrir ráðstefnu um lyfjamál þann 26. janúar kl.17:30-20:30 í Háskólanum í Reykjavík.
Ráðstefnan er hluti af WOW Reykjavik International Games 2017.
Þetta er einstakt tækifæri til þess að fá að heyra um eitt stærsta málefni líðandi stundar í íþróttaheiminum og framtíðarhorfur í þeim málaflokki. Mjög áhugaverðir fyrirlesarar munu vera með erindi:
• Fyrrum Tour de France hjólreiðamaðurinn Michael Rasmussen hefur viðurkennt stórfellda lyfjamisnotkun á meðan á ferlinum stóð. Hann keppti á sama tíma og Lance Armstrong og því afar áhugavert að heyra erindi þessa fyrrum hjólreiðamanns.
• Rannsóknarblaðamaðurinn Hajo Seppelt gerði heimildamyndir sem þóttu sanna skipulagt lyfjamisferli í Rússlandi. Lyfjahneykslið sem komst í hámæli í nóvember árið 2014, hafði áhrif á alla heimsbyggðina, þá sérstaklega hvað varðar Ólympíuleikana í Ríó 2016.
• Dr. Ron Maughan er sérfræðingur í íþróttanæringarfræði og fæðubótarefni og hefur leitt þann málaflokk hjá Alþjóðaólympíunefndinni (IOC) frá árinu 2002. Hann mun fjalla um hætturnar við notkun fæðubótarefna í sínu erindi. Hvað ber íþróttamönnum að varast og hafa í huga þegar þeir neyta fæðubótarefna?
Nánari dagskrá má sjá hér á vefsíðu RIG.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Sverrisson, verkefnastjóri Lyfjaeftirlits ÍSÍ, birgir@isi.is, 514-4022.