Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

16.05.2024 - 16.05.2024

Ársþing FSÍ 2024

Ársþing Fimleikasambands Íslands (FSÍ) verður...
16

Opnunarhátíð Lífshlaupsins

04.02.2014Opnunarhátíð Lífshlaupsins verður haldin í samkomusal Hraunvallaskóla í Hafnarfirði á morgun, miðvikudaginn 5. febrúar klukkan 10:00. 

Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Geir Gunnlaugsson, landlæknir, Lars Jóhann Imsland Hilmarsson, skólastjóri Hraunvallaskóla, Magnús Ragnarsson, aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra, Áslaug Einarsdóttir frá velferðarráðuneytinu og Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar flytja stutt ávörp og taka síðan þátt í léttri og skemmtilegri þraut, ásamt nemendum úr Hraunvallaskóla, sem Andrés Guðmundsson hjá Skólahreysti stjórnar. Einnig munu nemendur skólans sjá um skemmtiatriði.

Enn er hægt að skrá vinnustaði/skóla, lið/bekki og einstaklinga til leiks á www.lifshlaupid.is