Fjarnám í þjálfaramenntun - skráning í gangi!
28.01.2014
Fjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst í febrúar og er skráning í fullum gangi. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar íþróttahreyfingarinnar og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Meðal efnis er kennslufræði íþrótta, íþróttasálfræði, íþróttameiðsl, skipulag íþróttaþjálfunar, næringarfræði íþrótta, uppbygging líkamans, prófun á þoli, styrk, hraða o.fl. Fjarnám 1. stigs hefst mánudaginn 17. febrúar og fjarnám 2. og 3. stigs hefst 24. febrúar. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000. Ítarlegri umfjöllun um fjarnámið má finna í annarri frétt hér á síðunni.
Allar upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ veitir Viðar Sigurjónsson á vidar@isi.is og/eða í síma 460-1467.